Krummavísur
Popularity · Low
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Krummi svaf í klettagjá
Kaldri vetrarnóttu á
Verður margt að meini
Verður margt að meini
Fyrr en dagur fagur rann
Freðið nefið dregur hann
Undan stórum steini
Undan stórum steini
Allt er frosið úti gor
Ekkert fæst við ströndu mor
Svengd er metti mína
Svengd er metti mína
Ef að húsum heim ég fer
Heimafrakkur bannar mér
Seppi' úr sorp að tína
Seppi' úr sorp að tína
Seppi' úr sorp að tína
Öll er þakin ísi jörð
Ekki séð á holtabörð
Fleygir fuglar geta
Fleygir fuglar geta
En þó leiti út um mó
Auða hvergi lítur tó
Hvað á hrafn að éta
Hvað á hrafn að éta
Á sér krummi ýfði stél
Einnig brýndi gogginn vel
Flaug úr fjallagjótum
Flaug úr fjallagjótum
Lítur yfir byggð og bú
Á bænum fyrr en vakna hjú
Veifar vængjum skjótum
Veifar vængjum skjótum
Sálaður á síðu lá
Sauður feitur garði hjá
Fyrrum frár á velli
Fyrrum frár á velli
Krunk, krunk, nafnar, komið hér
Krunk, krunk, því oss búin er
Krás á köldu svelli
Krás á köldu svelli
Krás á köldu svelli