Skip to content
Lyric
Dive
Public playlists
My playlists
Search
Sign in
Við Erum Best
Besti Flokkurinn
Popularity · Low
+
Original
0
0
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Original
Translation
Bilingual
Við viljum borg sem er flott sem er hrein og hlý
Og hágæða stöff sem að vit er í
Ekki meira blöff, borgin mín hún þarf að vera töff
Við viljum gosbrunna, lestir og alls konar dýr
(Best... best... best...)
Ekki glerjaðar hallir og steinsteyptar brýr
Ekki meira af því gefum fávitunum frí
Við erum best
Bestasti flokkurinn
Best fyrir Reykjavík
Borgin sú er engu lík
Kerfið er súrt
Tími til að lofta út
Tökum nú til
Tími fyrir kaflaskil
Gef mér B, gef mér E, gef mér S, gef mér T
(Best... best... best...)
Gefum ráðhústökufólkinu verðskuldað hlé
Látum horngrítisskepnurnar hýrast í Húsdýragarðinum
Við erum best
Bestasti flokkurinn
Best fyrir Reykjavík
Borgin sú er engu lík
Kerfið er súrt
Tími til að lofta út
Hey tökum nú til
Það er tími fyrir þáttaskil
Þegar þú kúldrast inn í kjörklefanum
Með krumpaðan seðilinn í hnefanum
Mátt ́ekki veðja á vitlausan hest
Veldu okkur, það er best
Kæru samborgarar
Nú þarf hver Reykvíkingur að líta sér nær, skoða hjarta sitt
Og spurja sig, fjölskyldu sína og jafnvel trúnaðarvini
Vil ég bjarta framtíð með Besta flokknum eða vil ég tortíma Reykjavík
Við erum best
Ókeypis handklæði á öllum sundstöðum
Bestasti flokkurinn
Ísbjörn í Húsdýragarðinn
Best fyrir Reykjavík
Allskonar fyrir aumingja
Betri en þessi liðnu lík
Disneyland í Vatnsmýri
Kerfið er súrt
Fíkniefnalaust Alþingi 2020
Komum öll og loftum út
Sjálfbært gegnsæi
Hey stökkvum nú til
Út með Bjarna Ben og inn með Einar Ben
Stokk upp þessi fokking spil
Tollahlið á Seltjarnarnes
Við erum best
Fella niður allar skuldir
Ókeypis í Hljómskálagarðinn
Fækka öllum jólasveinum niður í einn
Við sættum okkur ekki við lélegt vegna þess að við viljum fá best