Blessun Er Bölvun Mín
Shades Of Reykjavik
Popularity · Low
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Yo, hvað er uppi?
Unga undrið brýtur munstrið, stundin runnin upp
Leggjum grunninn, til í tuskið
Gamla klukkið, sama kuskið
Ertu búinn homie? Réttu mér stubbinn
Sýni yfirburði er ég opna á mér munninn
Frábrugðið, chilla hátt uppi
Spái ekki í smámuni, er með beats
Alsæla, ekki andmæla því
Ég er að framkvæma skít, þetta stafræna beat
Eins og hríðskotabyssa, ekki missa
Þú spilar leikinn djúpt, Looney Tunes crew?
Ég og pían þín gerum búmm búmm búmm
Mér er skítsama, alltaf út úr kú
Hér er ég, hver ert þú?
Fullt tungl og ég breytist í úlf (fullt tungl og ég breytist í úlf)
Í dimmu herbergi ég lýsi ljós
Sé skugga flökta fæ aldrei nóg
Vakna upp úr draumi, var ég að sofna aftur
Í mínum eigin heimi, vil fara að sofa aftur
Vakandi, sofandi, hugurinn farinn á flug
Tala undir rós, farinn svo fljótt
Fyllist af þörfinni, fylli upp í tómið í nótt
Nútíðin, fortíðin, framtíðin, blandast í spíralinn
Huga minn, sleikurinn, spegilmynd mín
Oft hef ég huganum týnt, fundið á ný
Hugsanaský
Stopp, allt upp á nýtt (stopp, allt upp á nýtt)
Blessun er bölvun mín
Hún gefur englum og djöflum á [?]
Tala við sálina, komin í frí
Tíminn er stopp, vakandi, sofandi, draumalíf
Draumveruleiki, draumur á ný
Hvað hef ég komið mér í, komið mér í (hvað hef ég komið mér í)?