Skip to content
Lyric
Dive
Public playlists
My playlists
Search
Sign in
Inn um gluggann
Moses Hightower
Popularity · Low
+
Original
0
0
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Original
Translation
Bilingual
Utan gluggans undir súð
Götuljósin lýsa upp næstu þök
Og ekki gott að segja
Hvort hann hafi vakað heila nótt
Eða bara fáein andartök
Nætursvalinn ber með sér
Bæjarklið sem hverfur brátt
En hvað varðar þann um slíka
Ógnarsmáa hluti utanfrá
Sem á svo ósköp stirt
Um andardrátt?
Og stjörnur þótt eygi hann
Auðnast þeim trauðla að hugga hann
Né heldur, tært það þó teygi hann
Tunglsljósinu inn um gluggann
Tunglsljósinu inn um gluggann
Fyrr um kvöldið höfðu þau
Hugsað með sér eins og áður oft
Að ekkert geti verkað innvortis
Öllu heilnamara en næturloft
Og stjörnur þótt eygi hann
Auðnast þeim trauðla að hugga hann
Né heldur, tært það þó teygi hann
Tunglsljósinu inn um gluggann
Tunglsljósinu inn um gluggann