Skip to content
Lyric
Dive
Public playlists
My playlists
Search
Sign in
Helheimur
Skálmöld
Popularity · Low
+
Original
0
0
Listen
YouTube
1
2
3
0:00 / 0:00
Loading YouTube player...
Lyrics offset
Synced
Lyrics
Original
Translation
Bilingual
Brakar í jöklum og beinin eru köld,
Blásvart myrkrið öskrar því að nú er komið kvöld.
Gjallarbrú trónir og minnir á sinn mátt.
Það eru menn þarna úti sem ekkert geta átt.
Fordæmdir ýlfra og festa enga ró,
Fingurnir sem eitt sinn bærðust, núna þaktir snjó.
Meinað að sofa er myrkrið kæfir þá.
Það eru menn þarna úti sem aldrei birtu sjá.
Í Hel.
Hér sefur enginn vel.
Í Hel.
Drottningin horfir er dæmdir missa vit,
Dagurinn er horfinn og með barnið mitt ég sit.
Tárin þau frjósa er mænir hún á mig.
Það eru menn þarna úti sem vilja taka þig.
Í Hel.
Hér sefur enginn vel.
Í Hel.
Í Hel.
Hér sefur enginn vel.
Lífið víst þráir ljós og yl,
Liggja þar smáir, kaldir,
Horfa þeir bláir Heljar til,
Hér sofa náir kaldir.
Hér sofa náir kaldir!.
Í Hel!.