Skip to content

Norðurljós

Popularity · Low

YouTube

Searching YouTube...

Lyrics

Ég sat um kvöld og horfði hátt á himinsblámans djúp, og augun drógust dræmt í kaf í dimman næturhjúp. Ég vildi horfa húmið burt og heiðið bak við sjá. Og ef til vill var augasteinn minn óskasteinninn þá. Ég vildi sigra sortans mátt og sjá í gegnum hann, því einhver þrá til æðra lífs í æðum mínum brann. Ég þráði meira, meira ljós í mínu veika sál; ég þráði glóð frá Guði sjálfum, glóð sem væri ei tál. Þá kviknaði allt í einu snöggt á undralampans kveik. Og sjá, hin björtu blysin Guðs sér brugðu í fagran leik. Þau þutu víða vegu geims og vóðu blámans hyl, og leifturhraðar litasveiflur lýstu jarðar til. Að lýsa þeirra Drottins dýrð ei dauðleg tunga kann, en helga nálægð himinsins mitt hjarta þegar fann. Og lúin sál mín lagðist þar við lífsins bjarta ós, og svalg á einu augnabliki öll þau norðuljós. Þá barnið hló í brjósti mér, og birtan varð mín hlíf. Ég heyrði Drottins hjarta slá, þá hvarf mér dauði og líf. Ég sá við undralampans ljós á leifturhraðri ferð: úr ótal slíkum augnablikum eilífðin er gerð.