Skip to content
Lyric
Dive
Public playlists
My playlists
Search
Sign in
Sleipnir (Bonus Track)
Skálmöld
Popularity · Moderate
+
Original
0
0
Listen
YouTube
1
2
3
0:00 / 0:00
Loading YouTube player...
Lyrics offset
Synced
Lyrics
Original
Translation
Bilingual
Reiðskjótinn okkar er reisulegt hross
Runninn úr Ásgarði er hann
Skjannahvítt faxið er skínandi foss
Hann skeiðar við reiðar
Áttfættur fákurinn æðir um jörð
Alföður hnarreistur ber hann
Hermanni verða þá hæðir og börð
Og heiðar vel greiðar
Og hann mun mig bera á baki sér
Við berumst um vegi sem enginn fer
Klárinn er þýður og krfæur og stór
Krafturinn tekur fram vonum
Gáir þó að sér, er gæfur og rór
Um gjótur er fljótur
Aldrei hann sligast og engan hann slær
Sleipnir er nafnið á honum
Alls enginn fjandmaður sitja hann fær
Hans fótur er skjótur
Nú fljúgum við léttir um loftin blá
Hve landið er fagurt og margt að sjá
Hann viljugur ber mig á baki sér
Við Brynhildur förum hvar enginn fer
Ríða rokka, róta, reiða
Líða, lokka, ljóta leiða
Bíða, brokka, blóta breiða
Skríða, skokka, skjóta skeiða
Skeiða skjóta, skokka, skríða
Breiða blóta, brokka, bíða
Leiða ljóta, lokka, líða
Reiða, róta, rokka, ríða
Ríða um slóða og róta hvern metra
Líða með góðum, hið ljóta skal betra
Bíða uns slotrar og blóta við eldinn
Skríða í hnakk fararskjóta á kveldin
Skeiða á klárnum og skokka um heima
Breiða út faðminn og brokka og dreyma
Leiða þá sáru og lokka svo fjendur
Reiða loks stúlku og rokka um lendur