Sadóma
Popularity · Low
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Mér er nautn að blóðga mig og berja
Brjóta neglur strýkja mig og merja
Vera sífellt svipaður með göddum
Og sitja oní tunnu fullri af pöddum
Gulur rauður grænn og blár glaður skríð ég um
Notalega svöðusár ég sippa á stúfunum
Mér finnst gott að hýða mig og hengja
Á hárinu' uppi í tré og láta flengja
Ég nýt þess þegar nammið sem ég kaupi
Er næstum eins og dáin rotta' í hlaupi
Gulur rauður grænn og blár með gleðibros á vör
Í lærunum mér líður skár þar liggja jeppaför
Hvað er svo glatt sem halaklipptur hundur
Sem höggvinn er að mestu leyti' í sundur?
Það er ég því margt er minna gaman
En myndast við að skríða aftur saman
Í litlum bútum lillablár ég ligg í vaskinum
Notalega svöðusár með sigg á rasskinnum
Ég elska að láta strýkja mig og stinga
Í stórutá og gleypa smápeninga
Ég heimta að láta kreista mig og kremja
Með kranabíl – og títt barlóminn lemja
Vængjunum í hausinn á mér!
Gulur rauður grænn og blár glaður skríð ég um
Notalega svöðusár ég sef hjá líkunum
Nú er ég orðinn einn af þeim í unaðsreitnum Hel
Líkin sækja líkin heim mér líkar dauðinn vel