Snert Hörpu Mína
Karlakór Selfoss
Popularity · Low
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Snert hörpu mína, himinborna dís,
Svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
Og festi á hann streng og rauðan skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka' úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
Og hlýt að geta sungið í þá líf.
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
Og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
Og sameinar með töfrum loft og jörð.
Ég heyri' í fjarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína himinborna dís,
Og hlustið, englar guðs í Paradís.
Snert hörpu mína himinborna dís,
Og hlustið, englar guðs í Paradís.