Ein Úti Á Götu Gekk
Popularity · Low
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Ein úti á götu gekk, grannvaxin ljúf og þekk
Yngismær feykifríð, fáklædd um sumartíð
Aldrei ég áður sá augu svo himinblá
Eða svo fimlegan fót
Og hjartað mitt tók viðbragð og ég hentist út á mel
Og hugðist reyna að nálgast þessa dís
En sporlaust var hún horfin mér svo ung og yndisleg
Ég enga henni fremur kýs
Ein úti á götu gekk, grannvaxin ljúf og þekk
Yngismær feykifríð, fáklædd um sumartíð
Aldrei ég áður sá augu svo himinblá
Eða svo fimlegan fót
Og nú er það að verða eins og meinloka hjá mér
Að mæna á allar konur hér í borg
Ég leita bæði snemma og seint en hún er ekki hér
Mitt hjarta er barmafullt af sorg
Ein úti á götu gekk, grannvaxin ljúf og þekk
Yngismær feykifríð, fáklædd um sumartíð
Aldrei ég áður sá augu svo himinblá
Eða svo fimlegan fót