Skip to content

Himnaganga

Popularity · Low

YouTube

Searching YouTube...

Lyrics

Við svífum upp í geim Við ferðumst gegnum mánanótt Ofar öllum þeim sem sofa vært og rótt Ég held mér afar fast í gegnum myrkrið næturblátt Ég finn að flogið get með þér svo himinhátt Jörðin líður hjá Framhjá fjúka borg og bæ Skógi vaxin hlíð og lækur silfurtær Börnin stara opinmynt næturhiminn á Enginn slíka furðusjón áður sá Við syndum gegnum geim Við fljúgum gegnum frosin ský Fjallstindar á jörðu seilast okkur í Föllum nú með ógnarhraða niður að djúpum dal Vekjum með því kynjadýr sem lúrir þar Við svífum upp í geim Við dönsum gegnum myrkrið hlýtt Og þeir sem okkur sjá heilsa okkur blýtt Við svífum upp í geim