Skip to content
Lyric
Dive
Public playlists
My playlists
Search
Sign in
Upp úr minni þjálu sorg
ZAKAZ
Popularity · Low
+
Original
0
0
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Original
Translation
Bilingual
Upp úr minni þjálu sorg
Upp úr minni köldu gröf
Ég vakna upp og fagna
Ég vakna upp og sakna þín
Hvar í heimi hvílir sál
Sem öngva snertir lengur
Hvar í heimi er sú tál
Sem tekur formi báls og dregur að
Þitt Hof úr holdi
Þitt mikla musteri Satans
Þín óspillta heilaga sál
Sem brennur í örmum mínum
Hvar í heimi býr sú sorg
Sem fylgir manni um óra tíma
Hvar í heimi er sú borg
Sem geymir alla liðnu tíma
Hvar í heimi býr sú ánauð
Sem setur allt og alla í fjötra
Hvar í heimi er sú gnauð
Sem glymur hátt og lætur gnötra
Dauðir þramma hinn þrönga gang
Troðast á eftir þinni hönd
Hinir ókleifu hamrar Dranga
Hleypa engum upp og gleypa alla
Hamrar slá taktinum fastar
Högg eftir högg
Hjartað slær taktinum fastar
Slag eftir slag
Hvar í heimi er sú ímynd
Sem líkist friði á bak við ótta
Hvar í heimi er sú auðlind
Sem frelsar mönnum frá flótta
Hið mikla ljós á endanum, á botninum