Skip to content

Þú og ég (alternate)

Popularity · Low

YouTube

Searching YouTube...

Lyrics

Ef þú þiggur mína ást færð þú til baka allt það besta sem að boðið get ég þér. Við eigum af svo mörgu gott að taka ég vil eyða allri ævinni með þér. Þótt brostnar verði vonir skaltu bíða. Þú fundið getur ástina með mér. Lífið sjálft til lukku getur snúist leyfðu mér að finna það með þér. Þú og ég... Gef þér alla daga ást mína og hlýju ekkert betra í lífi mínu er. Vafinn umhyggju og ástinni að nýju alla ævi viltu eig'ana með mér. Til einskis er að gráta eða syrgja við saman munum þræða þessa leið. Vonina við höfum til að byggja og ástina sem ávallt okkar beið. Þú og ég... Það er svo gott í lífinu að elska eins og blóm á engi ástin grær. Ef gefurðu til baka ást að nýju elskaðu og lífið við þér hlær. Þú og ég...