Our Steps, To the Night
Popularity · Low
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Flökta tvístruð tákn
Trauðla flaggið blaktir.
Fjarar þrek er þúsund menn
þreyta slóðann hraktir
Brostnar vonir, vá
Veggir martröð þaktir
Undir sunnu þrælar Þórs
þreyta slóðann hraktir.
Fram á rauða nótt
Fram í rauðan dauðann
Enginn veit sinn næturstað.
Örlög þola' í þögn
þræðir heljar raktir
Sækja fram til sólarlags
Synir okkar hraktir
Fram á rauða nótt
Fram í rauðan dauðann
Enginn veit sinn næturstað.