Skip to content
Lyric
Dive
Public playlists
My playlists
Search
Sign in
Flugvélar
Nýdönsk
Popularity · Low
+
Original
0
0
YouTube
Searching YouTube...
Lyrics
Original
Translation
Bilingual
Þegar ég horf'á þig
Mér finnst ég vera til.
Allt verður auðvelt,
Allt verður einfalt.
Getur verið
Að samanlagðar sálir
Geti einhverju breytt?
Þegar ég horf'á þig
Lifna dauðir hlutir við.
Steinarnir ilma,
Gráta og hlæja.
Getur verið
Að samanlagðar sálir
Geti einhverju breytt?
Að allt verði yfirstigið,
öll náttúrunnar lögmál?
Og við svífum um loftin,
Tvær ástfangnar flugvélar.
Yfir úthafinu ég elska þig,
það sér okkur enginn þar.
Og við svífum um loftin,
Tvær ástfangnar flugvélar.
Í fimmþúsund fetum ég kyssi þig
Og býst svo til lendingar.
Þegar ég horf'á þig
Er veröldin svo smá.
Í faðmlagi okkar,
Jörðin og sólin.
Getur verið
Að samanlagðar sálir
Geti einhverju breytt?
Að allt verði yfirstigið,
öll náttúrunnar lögmál?
Og við svífum um loftin,
Tvær ástfangnar flugvélar.
Yfir úthafinu ég elska þig,
það sér okkur enginn þar.
Og við svífum um loftin,
Tvær ástfangnar flugvélar.
Í fimmþúsund fetum ég kyssi þig
Og býst svo til lendingar.
Já, við svífum um loftin,
Tvær ástfangnar flugvélar.
Yfir úthafinu ég elska þig,
það sér okkur enginn þar.