Skip to content

Innras

Skalmold
Popularity · Low

Listen

YouTube

0:00 / 0:00
Loading YouTube player...
Lyrics offset
Synced

Lyrics

Heyrir þú í vargsins væli? Vopnlaus ertu, auminginn Nálgast ég þitt nægtabæli Nú er mestur kraftur minn Borinn var í myrkri moldu Mér var gefið kvalræðið Blæðandi mig böndin þoldu Brakaði í hverjum lið Vitundin er vafin drunga Villandi og óskapleg Blóðþorstann, þá byrði þunga Borið hef um langan veg Brotinn, grimmur, bitur, sekur Bifast ekki ögn úr stað Heiftin áfram hatrið rekur Herðir tak og kreppir að Hyldýpið sem hef í brjósti Heimtar af mér gjörðir þær Að ég þig með illu ljósti Opni sár sem hvergi grær Baldursbrá Bæjará Himinhá Heljarspá Heyrir þú í vargsins væli? Vakir þú svo seint um kvöld? Þú sem veitir höltum bæli Hefur ekki vopn og skjöld