Skip to content
Lyric
Dive
Public playlists
My playlists
Search
Sign in
Lítill Drengur
Vilhjálmur Vilhjálmsson
Popularity · Low
+
Original
0
0
Listen
YouTube
1
2
3
0:00 / 0:00
Loading YouTube player...
Lyrics offset
Synced
Lyrics
Original
Translation
Bilingual
Óðum steðjar að sá dagur,
Afmælið þitt kemur senn.
Lítill drengur, ljós og fagur
Lífsins skilning öðlast senn.
Vildi ég að alltaf yrðir
Við áhyggjunar laus sem nú
En allt fer hér á eina veginn:
Í átt til foldar mjakast þú.
Ég vildi geta verið hjá þér
Veslings barnið mitt.
Umlukt þig með örmum mínum.
Unir hver með sitt.
Oft ég hugsa auðmjúkt til þín
Einkum, þegar húmar að.
Eins þótt fari óravegu
átt þú mér í hjarta stað.
Man ég munað slíkan,
Er morgunn rann með daglegt stress,
Að ljúfur drengur lagði á sig
Lítið ferðalag til þess
Að koma í holu hlýja,
Höfgum pabba sínum hjá.
Kúra sig í kotið hálsa,
Kærleiksorðið þurfti fá.
Vilhjálmur Vilhjálmsson