Skip to content

Flóinn

Karlakór Selfoss
Popularity · Low

Listen

YouTube

0:00 / 0:00
Loading YouTube player...
Lyrics offset
Synced

Lyrics

Sástu suð ́r í Flóa Sumarskrúðið glóa, þegar grænust gróa Grös um Ísafold? Sástu vítt um vengi Vagga stör á engi? Sástu djarfa drengi Dökka rækta mold? Allt af lífi iðar, Yfir fuglinn kliðar, Foss í fjarska niðar, Fiskar ganga úr sjó. Vekur sumarsunna Söng í blómarunna. Mettar ótal munna Moldin djúp og frjó. Hvar sem stofninn sterki Stefnir rétt að merki, Vex af hverju verki Von og trú á fold. Enn mun sýna og sanna, Saga Flóamanna, ást til átthaganna, ást á frónskri mold.