Skip to content

Heims um bóleró (Jólin eru æði)

Popularity · Low

Listen

YouTube

0:00 / 0:00
Loading YouTube player...
Lyrics offset
Synced

Lyrics

Þegar desember á dynur, þegar dægurkórinn stynur, þegar heimsmynd okkar hrynur og við hvergi finnum skjól, þá við bljúg á knén krjúpum og við kálum nokkrum rjúpum, í sykur heiminn hjúpum og höldum enn ein jól. Kveikum nú á kertunum og kyngjum jólatertunum og játum það að jólin eru æði. Berum allt úr búðunum og brettum nef á rúðunum og játum það — jólin eru æði. Þegar úti myrkrið mest er, þegar mæðulegast flest er, þegar langsamlega best er, að læðast heims um ból, þá við stígum upp á stóla og við straujum bláa kjóla. Loks af gleði allir góla því það gætu komið jól. Skellum nú upp skrautinu og skrúfum niður í tautinu og játum það — jólin eru æði. Refsum kreditkortunum og kyngjum öllum sortunum og játum það að jólin eru æði. Það er desembermorgunn og allt er svo ferlega falla-la. Um fannhvíta jörð trítla börnin og allt er svo falla-la. Svo skellur á ólukkans aðventufrenzýið falla-la. Og allt fer úr skorðum, á taugum og rakleitt til falla-la. Tæmum allt úr veskinu og tökum vel á fleskinu og játum það að jólin eru æði. Myrðum grunlaus grenitré og gerum látlaust matarhlé og játum það að jólin eru illuð. Taugatrekkjum krakkana sem tæta í sig pakkana og játum það að jólin eru sturluð. Endum loks á jólanótt öll með græna bólusótt og játum það — jólin eru æði!