Skip to content
Lyric
Dive
Public playlists
My playlists
Search
Sign in
Háa c
Moses Hightower
Popularity · Low
+
Original
0
0
Listen
YouTube
1
2
3
0:00 / 0:00
Loading YouTube player...
Lyrics offset
Synced
Lyrics
Original
Translation
Bilingual
Neyðir sig í tré
nývaknaður þröstur upp á háa C
og heldur því
Þegar bærinn er
enn að klára úr fyrsta bolla
og teygja úr sér
legg ég hann í
Úti sækir mannmergðin að mér
rétt eins og háflóðið að auðri strönd
og ég sé að eins og gengur
ferðast sumir einir
aðrir hönd í hönd
Kvölds ég bregð mér frá
skottast kannski út
og jafnvel fæ mér smá
í tá
(jájá það má) það má
Úti sækir mannmergðin að mér
rétt eins og háflóðið að auðri strönd
og ég sé að eins og gengur
ferðast sumir einir
aðrir hönd í hönd
Og þó að það sé sárt
þá fer ég ekki af því
að eina hönd sé umfram aðrar
gott að halda í
En þegar sólin sest
geri ég það sem ég geri manna best
(horfi á Lé, á DVD,
bara ég og Olivier)
Úti sækir mannmergðin að mér
rétt eins og háflóðið að auðri strönd
og ég sé að eins og gengur
ferðast sumir einir
aðrir hönd í hönd
Undanfarið ertu furðu fátíð
Er fáni okkar hífður hálfvegis að húni?
Þarf ég þá að hugsa bara um þig í þátíð?
Eins og næturvaktin í Nóatúni
Hví ertu svona fjarska fátíð?
Er fáni okkar hífður hálfvegis að húni?
Þarf ég þá að hugsa bara um þig í þátíð?
Eins og næturvaktin í Nóatúni
Undanfarið ertu furðu fátíð
Er fáni okkar hífður hálfvegis að húni?
Þarf ég þá að hugsa bara um þig í þátíð?
Eins og næturvaktin í Nóatúni